16. mars 2010
Vertu með
Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs.
Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur sem komu út árið 2009.
Hver lesandi má velja allt að 3 bækur með því að fylla út kjörseðil í bókasafninu eða í skólabókasöfnunum og skila inn fyrir 18. mars.
Borgarbókasafn tilkynnir úrslitin við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Tvær bækur verða verðlaunaðar, önnur frumsamin íslensk og hin þýdd.
Bókasafn Akraness veitir síðan heppnum þátttakendum á Akranesi og nágrenni glaðning og verður það tilkynnt síðar.