ForsíðaSafnkosturÞjónustaUm safnið
Blindur er bóklaus maður

Vissir þú að börn og unglingar fá frí skírteini til 18 ára aldurs?

Prenta vefsíðu
17. júní 2010

Safnarasýning

Í útlánasal bókasafnsins sýnir Þórný Elísdóttir, Vitateig 3, mæðradags- og feðradagskort. Kortin koma úr búi tengdaforeldra hennar, en þau eru bæði látin. Dóttir hjónanna, mágkona Þórnýjar bjó  í Bandaríkjunum alla sína búskapartíð og sendi foreldrum sínum kort á mærða- og feðradag í fjölda ára. Þórný hefur flokkað kortin og sett í möppur. 

Sýningin verður í safninu til júlíloka og skipt verður reglulega í sýningarkössunum.

Mæðradagurinn er haldin hátíðlegur annan sunnudag í maí og á sér langa sögu, eða allt frá árinu 1934.

Feðradagur er haldinn hér á landi  annan sunnudag í nóvember, eins og hjá frændum okkar í Skandinavíu. Feðradagur var fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi  árið 2006. 

Í hinum enskumælandi heimi er þriðji sunnudagur í júní feðradagur.

 
Bókasafn Akraness | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími 433 1200 | bokasafn@akranes.is