Bókin heim er heimsendingarþjónusta fyrir þá sem vegna aldurs eða fötlunar geta ekki komist á safnið. Lánþeginn velur bækur, hljóðbækur eða tímarit í samráði við bókavörð og fær sendar heim á fjögra til sex vikna fresti. Einnig er hægt að þiggja þessa þjónustu tímabundið yfir vetrarmánuðina. Allar nánari upplýsingar í afgreiðslu safnsins og í síma 433 1200
Á Veggnum er sýning á myndskreytingum Bjarna Þórs Bjarnasonar, úr barnabókinni Rafael, engillinn sem valdi að koma til jarðar. Bókin er eftir Ásthildi Snorradóttur og kom út fyrir jólin.
Ný gjaldskrá Bókasafns Akraness tekur gildi 3. janúar 2012. Sjá nánar hér.
Bókasafnið er opið samkvæmt hefðbundnum hætti um jól og áramót, með örlítilli undantekningu.23. desember Þorláksmessa kl. 10 - 1824. desember Aðfangadagur jóla, lokað27. desember kl. 10 - 1828. desember kl. 10 - 1829. desember kl. 10 - 1830. desember kl. 10 - 1831. desember, Gamlársdagur, lokað2. janúar 2012, lokaðÞað sama á við Héraðsskjalasafn Akraness, opið mánudaga - fimmtudaga kl 10-15. Lokað 2. janúar 2012