ForsíðaSafnkosturÞjónustaUm safnið
Blindur er bóklaus maður

Heitir reitir eru í bókasafninu og geta gestir komið með fartölvur sínar og komist á netið.

Prenta vefsíðu

Viðskiptavinir bókasafna geta fengið lykilorð sem veitir þeim aðgang að „Mínum síðum“ á vefsvæðinu Gegnir.is.  Lykilorðin eru afhent í afgreiðslu eða upplýsingaþjónustu safnsins, gegn framvísun skírteinis.

 

Á „Mínum síðum“ geta viðskiptavinir:

  • Séð hvað þeir eru með í láni
  • Endurnýjað lán (ef enginn biðlisti er á gögnunum)
    • Til að framlengja láni á kvikmyndum þarf að hringja í Bókasafnið
  • Sett sig á biðlista eftir gögnum sem eru í útláni
    • Leitið fyrst að bókinni, finnið eintakið og smellið á Taka frá 
  • Skoðað frátektirnar sínar og séð hvar í röðinni þeir eru
  • Skoðað fyrri útlán sín (aðeins 100 síðustu útlán sjást)

 

Eftir sem áður er viðskiptavinum velkomið að hringja í Bókasafnið og spyrjast fyrir um stöðu sína eða fá láni framlengt. Síminn er 433 1200

 
Bókasafn Akraness | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími 433 1200 | bokasafn@akranes.is