Hægt er að panta safnkynningu eða bóka heimsókn fyrir hópa
Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabókina sem kom út árið 2011, frumsamda á íslensku og þýdda. Hver lesandi má velja 1- 3 bækur og eru kjörseðlar á bókasafninu og í bókasöfnum grunnskólanna. Kosninginu lýkur 19. mars. Á sumardaginn fyrsta, 19. apríl kemur í ljós hvaða bækur börnin hafa valið, og verður það tilkynnt hátíðlega á Borgarbókasafni. Heppnir þáttakemdur á Akranesi fá glaðning. Dregið úr innsendum kjörseðlum.
Bókakoffort er farandbókasafn sem Bókasafn Akraness lánar á leikskóla Akranesskaupstaðar. Börnin geta fengið bækur lánaðar heim og skila þeim síðan aftur í koffortið að lestri loknum. Fyrsti leikskólinn til að fá koffort var Akrasel og var vel tekið á móti bókasafnskonunum. Sumir héldu reyndar að bílar væru í koffortinu, en voru ekki síður ánægð að sjá allar bækurnar. Koffortin eru gamlir skipakassar sem hafa öðlast nýtt hlutverk.
Sumarlestri lýkur 29. júlí. Þáttakendur þurfa að skila inn Lesblaðinu sínu í siðasta lagi 5. ágúst n.k.
Undanfarnar vikur hefur 4. bekkur Brekkubæjarskóla og Grundarskóla komið í safnkynningu.
Nemendur úr 4. bekk í Brekkubæjarskóla heimsóttu bókasafnið í febrúar. Börnin kynntu sér hvernig þau gerst lánþegar í safninu og hvaða reglur gilda í bókasafninu. Þau skoðuðu safnkostinn og litu við á Ljósmyndasafninu.
Eftir 1. október 2007 verður lesið úr nýjum barnabókum á Hafdís Daníelsdóttir les fyrir börninbókasafninu á miðvikudögum kl 17.
Samstarf er við leikskólana um heimsóknir leikskólabarna í bókasafnið.
Á miðvikudögum kl 17 er lesið fyrir börnin úr nýjum og gömlum bókum í söguhorninu.
Öll börn eru velkomin.
Eftir 1. október 2006 verður lesið úr nýjum barnabókum á bókasafninu á miðvikudögum kl 17.