ForsíðaSafnkosturÞjónustaUm safnið
Blindur er bóklaus maður

Lánþegar Bókasafns Akraness og Héraðsbókasafnsins í Borgarnesi geta tekið bækur á öðrum staðnum og skilað á hinum

Forsíða :: Þjónusta :: Börn og ungt fólk :: Fréttir úr barnastarfi
Prenta vefsíðu
5. janúar 2012 14:54

Koffortið - Farandbókasafn á leikskólum bæjarins

Bókakoffort er farandbókasafn sem Bókasafn Akraness lánar á leikskóla Akranesskaupstaðar. Börnin geta fengið bækur lánaðar heim og skila þeim síðan aftur í koffortið að lestri loknum. Fyrsti leikskólinn til að fá koffort var Akrasel og var vel tekið á móti bókasafnskonunum. Sumir héldu reyndar að bílar væru í koffortinu, en voru ekki síður ánægð að sjá allar bækurnar. Koffortin eru gamlir skipakassar sem hafa öðlast nýtt hlutverk.

 

 
Bókasafn Akraness | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími 433 1200 | bokasafn@akranes.is