Haraldssafn er einkasafn Haralds Sigurðssonar frá Krossi í Lundareykjadal. Akraneskaupstaður keypti safnið árið 1994, á 130 ára afmæli bókasafnsins. Þar er að finna m.a. bækur prentaðar að Leirárgörðum og Beitistöðum fyrir um 200 árum síðan.