Svöfusalur 
Í september 2002 var tekinn í notkun fjarfundabúnaður í Bókasafni Akraness. Var búnaðurinn vígður við hátíðlega
athöfn þann 12. september að viðstöddum menntamálaráðherra, bæjarstjóra Akraness og fleiri góðum gestum. Búnaðurinn gerir nemendum kleift að stunda fjarnám á Akranesi.
Við þetta tækifæri þótti við hæfi að heiðra minningu Svöfu Þórleifsdóttur fyrrverandi skólastjóra Barnaskóla Akraness, með því að nefna salinn þar sem búnaðinum hefur verið komið fyrir, Svöfusal.
Svafa Þórleifsdóttir (1886-1978) var brautryðjandi í skóla- og félagsmálum á Akranesi og í hópi merkustu kvenna sinnar samtíðar. Hún var skólastjóri Barnaskóla Akraness á árunum 1919 til 1944.