ForsíðaSafnkosturÞjónustaUm safnið
Blindur er bóklaus maður

“Bókin heim”er heimsendingarþjónusta til þeirra sem vegna fötlunar, aldurs eða annarra aðstæðna komast ekki í bóksafnið. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu

Forsíða :: Um safnið :: Leiðarljós og markmið
Prenta vefsíðu

Leiðarljós

Bókasafn Akraness er almenningsbókasafn og er rekið af Akraneskaupstað. Bókasafnið starfar samkv. lögum um almenningsbókasöfn nr. 36/1997
Hlutverk þess er að veita fólki, bæði börnum og fullorðnum, greiðan aðgang að fjölbreyttum bókakosti og öðrum miðlunargögnum, þar á meðal tölvubúnaði og upplýsingum á tölvutæku formi. Það skal efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og þekkingarmiðlum.
Safnið skal á sínu þjónustusvæði kappkosta að vera menningarstarfi og atvinnulífi til styrktar og hafa tiltækar upplýsingar fyrir almenning um opinberar stofnanir og þjónustu.
Markmið þess skal vera að efla íslenska tungu, stuðla að símenntun og örva lestraráhuga.

Þjónustusvæði safnsins er Akraneskaupstaður,  en þó fyrst og fremst einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir á Akranesi.  Safnið leggur sig fram við að þjóna hverjum þeim sem til þess leitar.

 

Markmið

- að veita íbúum á þjónustusvæðinu  jafnan aðgang að bókmenntum,
menningu, fróðleik og afþreyingu.
- að veita íbúum á þjónustusvæðinu jafnan aðgang að upplýsingum um
bæjarfélagið,  íslenskt samfélag og alþjóðleg málefni.
- að standa vörð um íslenska tungu.
- að styðja við einstaklingsmenntun, endurmenntun, símenntun og
fjarnám.
- að hvetja börn og unglinga til lestrar  með uppbyggilegur barna- og unglingastarfi.
- að safna og halda til haga átthagatengdu efni sem hefur sögulegt gildi fyrir héraðið.
- Þjónusta safnsins skal ná til einstaklinga og stofnana og fötluðum
tryggður aðgangur.
- Samstarf er við Héraðsbókasafn Borgarbyggðar.

 

Yfirlýsing Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um ALMENNINGSBÓKASÖFN

Netríkið Íslands 2008-2012
 

 
Bókasafn Akraness | Dalbraut 1 | 300 Akranes | Sími 433 1200 | bokasafn@akranes.is