Útlánareglur
Almenn útlán
Til að fá lánuð gögn á safninu er nauðsynlegt að eiga bókasafnsskírteini. Gögn safnsins eru ekki lánuð út án framvísun skírteinis.
Öllum er heimilt að fá bókasafnsskírteini. Börn 12 ára og yngri þurfa samþykki foreldris, eða forráðamanns, til að ábyrgjast skírteini barns síns. Í þeim tilvikum þarf að fylla út umsóknareyðublað í afgreiðslu safnsins.
Börn að 18 ára aldri greiða ekki fyrir skírteini.
Heimilt er að framlengja útlán í gegnum síma og á staðnum án þess að bók fylgi með.
Pantanir
Leyfilegt er að panta öll gögn sem merkt eru útlánadeild.
Heimilt er að panta bækur í gegnum síma 433 1200.
Greitt er gjald fyrir frátektir, sjá gjaldskrá.
Hringt er í viðkomandi einstakling, þegar efnið sem pantað var er komið inn.
Sá sem pantar bók skal nálgast hana innan tveggja daga frá því að það náðist í hann í síma. Ef bókin hefur ekki verið sótt eftir þann tíma skal hún ganga til næsta aðila sem átti bókina pantaða eða gengið frá henni í hillu.
Mynddiskar DVD og myndbönd
- Útlánatími flestra mynddiska er 2 dagar, verð samkv. gjaldskrá
- Fræðslumyndir eru fríar - útlánatími er ein vika.
- Barnamyndir eru leigðar út í 2 daga.
- Myndbönd eru lánuð án gjalds - útlánatími er ein vika.
Ef myndböndum eða mynddiskum er ekki skilað á réttum tíma, reiknast sekt. Dagssekt á hverja mynd er 65 krónur.
Mynddiskar eru eingöngu lánuð út gegn framvísun bókasafnsskírteinis, eins og önnur gögn safnsins.
Sektir
Gögn safnsins skulu innheimt þegar lánstími þeirra hefur runnið út.
Sekt reiknast þannig á vanskil bóka, hljóðbóka og tímarita: Dagssekt: sjá gjaldskrá.
Skemmist bók eða týnist greiðist fyrir hana með nýrri eða andvirði hennar.
Vinsamlega látið afgreiðslu vita ef bók eða tímarit skemmist í útláni, reynið ekki að gera við safngögn í eigu Bókasafns Akraness.
Ef safnefni er ekki skilað þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir skal viðskiptavinur sem í vanskilum er útvega bókasafninu eintak sem samsvarar því eintaki sem glatað er.