Philippe Ricart sýnir 52 spjaldofin bókamerki á Bókasafni Akraness.
Sýningin hefst föstudaginn 6. mars n.k. kl. 15.00 og lýkur 28. mars.
Allir velkomnir við opnun sýningar, heitt kaffi á könnunni.
Philippe setti sér það markmið að hanna og spjaldvefa eitt nýtt bókamerki í hverri viku á síðasta ári. Á sýningunni má sjá afraksturinn af þeirri vinnu.